Fréttir Grunnskóli
Vikuhatid hja 6 RV
Vikuhatid hja 6 RV
Vikuhátíð hjá 6. RV
Mynd 1 af 11
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11

Vikuhátíð hjá 6 RV

07.11.2011

 

Í liðinni viku hélt 6.RV vikuhátíð fyrir nemendur og starfsfólk í Hafnarskóla. Hátíðin var að venju haldin í Sindrabæ. Krakkarnir héldu úti afar skemmtilegri og fjölbreyttri dagskrá og má með sanni segja að þau hafi vakið stormandi lukku. Arndís og Svandís sáu um að kynna atriðin og fyrstar á svið voru Sigurborg og Guðný sem spiluðu tvö lög á klarinet fyrir áhorfendur. Sagðir voru brandarar og svo var þarna afar skemmtileg fréttastofa með veðurfréttum og íþróttafréttamönnum. Þetta var svona alvöru þar sem menn voru teknir í viðtal. Einnig var sýndur dans og tískusýning. Salóme söng eitt af vinsælu lögum Justins Beaber  og Aleksandra, Thelma Ýr og Hildur fluttu lag á pólsku. Takk fyrir fína skemmtun.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica