Hornsílin á lokasprettinum
Legóhópur Grunnskóla Hornafjarðar, Hornsílin æfa sig af kappi þessa dagana fyrir hina árlegu legókeppni. Keppni fer fram í Reykjavík 12. nóvember og er spenningurinn að stig magnast í hópnum.
Hópinn skipa 10 nemendur úr 7. bekk og skipstjórinn á skútunni er nú eins og áður Eiríkur Hansson, kennari. Hópurinn heldur úti bloggsíðu þar sem hægt er að fylgjast með hvað þau hafa fyrir stafni. Síðuna má finna hér
Þau sem skipa hópinn eru: Birkir Fannar Brynjúlfsson, Agnes Jóhannsdóttir, Arney Bragadóttir, Brandur Ingi Stefánsson, Ísar Svan Gautason, Sunna Dögg Guðmundsdóttir, Elín Ása Heiðarsdóttir, Gísli Þórarinn Hallsson, Jóel Ingason og Ragna Steinunn Arnarsdóttir.



