Spurningakeppni
Í löngufrímínútunum undanfarna daga hefur farið fram spurningakeppni á milli bekkja í Heppuskóla. Keppnin hefur verið hin besta skemmtun og eru nemendur jafnt sem starfsfólk ánægt með framtakið og á nemendafélag skólans hrós skilið. Í næstu viku verður síðan úrslitakeppnin og eigast þá við nemendur úr 7.E., 8.I., 9.K. og 10. bekk.
Grunnskóli Hornafjarðar (8.-10. bekk) tekur síðan í framhaldinu þátt í Spurningakeppni Grunnskólanna sem haldin verður í Egilsstaðarskóla 30. nóvember n.k. Sigurvegari í þeirri keppni keppir síðan til úrslita í Reykjavík.



