Fréttir Grunnskóli
Dansvika
Dansvika
Mynd 4 af 7
1 2 3 4 5 6 7

Dansvika

18.10.2011

Núna stendur yfir hin árlega dansvika í Grunnskóla Hornafjarðar. Það er  Jón Pétur frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru sem sér um kennsluna eins og undanfarin ár. Almenn ánægja er hjá krökkunum og gaman að sjá hvernig þau leggja sig fram við að læra sporin. Skyldumæting er hjá 1. – 7. bekk en 8. – 10. bekkur hefur val um hefðbundna kennslu eða dans. Á föstudaginn líkur síðan dansvikunni með danssýningu í íþróttahúsinu sem hefst kl. 12:30. Við viljum hvetja foreldra til að fjölmenna og sjá krakkana sýna afrakstur vikunnar.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica