Fyrsta vikuhátíð vetrarins
Í liðinni viku var haldin fyrsta vetrahátíð vetrarins en það var 4.bekkur E sem reið á vaðið að þessu sinni. Boðið var upp á fjölbreytta skemmtun þar sem allir sem tóku þátt skemmtu sér konunglega og á það við bæði um áhorfendur sem og listamennina sjálfa.
Hátíðin byrjaði á að nokkrar stelpur sýndu waka- waka dansinn og í kjölfarið komu strákarnir og sýndu break-dans. Fluttir voru nokkrir sprenghlæilegir brandarar, Vigdís og Selma sungu Justin Bieber lag og höfðu stuðning af bakröddum og dönsurum, sannkölluð Eurovision stemming þar. Íris flutti lagið Frost er úti fuglinn minn ásamt bakröddum og að sjálfsögðu var tískusýning sem er auðvitað alveg nauðsynleg til að gefa tóninn svona í upphafi vetrar.



