Aðalfundur foreldrafélags Grunnskóla Hornafjarðar
Aðalfundur foreldrafélags Grunnskóla Hornafjarðar var haldinn í matsal skólans þriðjudaginn 4. október síðastliðinn. Ágætis mæting var á fundinn þar sem farið var yfir starf síðasta árs með töluverðri áherslu á fræðslufund Guðrúnar Jónsdóttur frá Heimili og skóla sem haldinn var 22. september á vegum foreldrafélagsins. Ný stjórn foreldrafélagsins var kosin á fundinum og er hún skipuð Guðrúnu Ingólfsdóttur, Heiðrúnu Högnadóttur, Ingu Rún Guðjónsdóttur og Ólöfu Ingunni Björnsdóttur.
Fundargerð aðalfundarins er á vef skólanshttp://www.rikivatnajokuls.is/grunnskoli/efni/foreldrar/felag/


