Fréttir Grunnskóli
10.bekkur
10.bekkur
Hluti hópsins við Tröllakróka
Mynd 1 af 15
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15

Lónsöræfaferð 10.bekkjar

06.10.2011

Eftir samræmduprófin, miðvikudaginn 21.september fór 10.bekkur í Grunnskóla Hornafjarðar í þriggja daga ferð í Lónsöræfin. 19 nemendur voru í þessari ferð og voru Berglind  Steinþórsdóttir, Jón Bragason og Kristján Örn Ebenezarson leiðsögumenn í þessari ferð. Ferðin byrjaði á því að ganga niður Illakamb til að komast í skálann sem við gerðum að okkar heimahúsi í heilar 2 nætur. Þegar við höfðum komið okkur fyrir í skálanum og fengið okkur næringu fórum við í göngu  upp með Þilgili. Við stoppuðum við lítinn læk á bakaleiðinni  og Berglind hitaði handa okkur kakó á prímus af mikilli einlægni og gat mannskapurinn yljað sér við það áður en haldið var heim í skálann. Á leiðinni úr Þilgili fórum við í skriðukapphlaup og þá var aldeilis sprett úr spori. Um kvöldið fórum við út í svarta stjörnubjarta nóttina og fórum í svokallaðann draugaskála til þess að hlusta á Jón Braga segja draugasögur. Eftir draugasögurnar fórum við svo út í feluleik en þetta var ekki venjulegur feluleikur heldur var þetta bregðufeluleikurinn mikli þar sem fólk faldi sig í myrkrinu.Klósettferðir voru ekki með venjulegu sniði og það var ágæt upplifun fyrir sig að þurfa að fara út í svarta myrkrið til þess að fara á klósettið og  tannbursta sig. Inni í skála var frekar notalegt, við sungum, spiluðum á spil og sumir ákváðu að fara bara í bólið og slaka á (voru uppgefnir) eftir góðan dag. Á degi tvö fórum við í heljarins mikla göngu og skoðuðum meðal annars Tröllakróka, horfðum að Egilsseli og yfir rústirnar á Grund í Víðidal. Útsýnið var stórfenglegt og náttúran eins og hún gerist best.  Jón Braga var með í för og sagði okkur margar skemmtilegar sögur úr dalnum. Ferðin tók ekki nema 8 klukkustundir en heppnaðist hún þó vel, við fengum aftur kakó og settumst oft niður og spjölluðum. Um kvöldið grilluðum við lambakjöt og höfðum svo eftirrétt sem virkaði víst ekki alveg eins og ætlað var þar sem að nokkrir drengir þurftu að fikta í eldstæðinu. Eftirrétturinn var pizzadeig með sultu og súkkulaði vafið utaná birkigreinar. Eldurinn varð svo mikill í grillinu og brenndust því flest brauðin en þeir sem voru þolinmóðir og biðu eftir réttum grillaðstæðum fengu nýbökuð súkkulaðibrauð á birkigrein. Á leiðinni heim gengum við upp Illakamb sem er nú ekki fyrir hvern sem er en við fórum létt með þetta. Það skemmtu sér bara allir vel og komu heilir heim. Það er best þannig. 

María Hjördís Karlsdóttir og Una Guðjónsdóttir

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica