Fréttir Grunnskóli
Vestmannaeyjar haust 2011
Vestmannaeyjar haust 2011
Fagmaður í bjarginu...
Mynd 1 af 15
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15

Áttundi bekkur í Vestmannaeyjum

30.09.2011

Í síðustu viku fór 8. bekkur í skólaferðalag til Vestmannaeyja. Ferðin tókst í allastaði vel og lék veðrið við ferðalangana sem fengu að upplifa eyjarnar í sól og blíðu. Fararstjórarnir voru ánægðir með hópinn, sem stóð sig vel og voru krakkarnir sér og sínum til sóma. Í ferðinni var m.a. farið í rútuferð um Heimaey, á sædýrasafnið,  sprangað og í siglingu í kringum eyjarnar og er slík ferð mikil upplifun fyrir flesta. Ekki skemmdi fyrir að gott sjóveður var og því lítil hætta á að sjóveiki truflaði ferðina. Á heimleiðinni var m.a. stoppað á Skógum og safnið þar skoðað. 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica