Af Vestmannaeyjaförum og öðrum ferðalöngum
Nemendur í 8. bekk eru núna í skólaferðalagi í Vestmannaeyjum. Þau héldu af stað í gær ásamt þremur starfsmönnum frá skólanum.
Ferðin í gær gekk í alla staði vel og var siglt úr Landeyjahöfn með Baldri í rjóma blíðu og tók siglingin um hálfa
klukkustund. Í gær var farið í skoðunarferð, sund og fl. Í dag var farið í siglingu umhverfis Heimaey í blíðskapar veðri og síðan var stefnan sett á fiskasafnið og þar á eftir ætla krakkarnir að spranga. Eins og áður hefur komið fram þá leikur veðrið við hópinn og allt hefur gengið eins og best verður á kosið.
Í dag lögðu nemendur í 10. bekk af stað inn á Lónsöræfi og gekk ferðin inn eftir vel fyrir sig. Spennandi ferðalag og góð reynsla fyrir bæði unga sem aldna (aldnir eru Berglind, Kristján og Jón
Bragason). Hópurinn kemur heim á föstudag.



