Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda
Þann 11. september fór fram verðlaunaafhending Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda en hún var haldin í 20. sinn.
Athöfnin fór fram í höfuðstöðvum Marel, sem verið hefur bakhjarl keppninnar frá upphafi. 40 hugmyndir voru valdar úr þeim 1.872 sem bárust frá 46 grunnskólum víða um land en 12 hugmyndir af þeim voru verðlaunaðar. Einn nemandi úr Grunnskóla Hornafjarðar, Guðrún Ása Aðalsteinsdóttir í 6. bekk var ein af þessum 40. Guðrún Ása fór suður og tók þátt í smiðju þar sem hún bjó til kynningarplakat og hlutinn sem hún hannaði en það er forláta tertuskeri.
Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson verndari keppninnar, afhenti verðlaunin og flutti hátíðarávarp. Mennta- og menningarmálaráðherra Svandís Svavarsdóttir, afhenti viðurkenningarskjöl til þátttakenda og grunnskóla. Þá kynntu þátttakendur sjálfir hugmyndir sínar fyrir gestum.


