Fréttir Grunnskóli
ferdalag 6- 7 bekkur
ferdalag 6- 7 bekkur
Í Bæjarstaðaskógi
Mynd 13 af 20
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20

Frábær ferð í Öræfi

09.09.2011

 

Nemendur í 6. og  7. bekk fóru í námsferð í Öræfin í vikunni sem er að líða. Lagt var af stað frá Hafnarskóla á þriðjudagsmorguninn og var það hress og kátur hópur nemenda sem og starfsmanna sem steig um borð í rúturnar. Fyrsta stopp var við Jökulsárlón þar sem kíkt var í nestispokana og hópurinn viðraður. Næsti áfangastaður var Hofgarður þar sem vistir voru bornar í hús og að því loknu var stefnan tekin á Skaftafell. Þarna hafði hópurinn stækkað aðeins þar sem nemendur úr Öræfum ásamt starfsmanni bættust í hópinn.  Í Skaftafelli tók Regína Hreinsdóttir, þjóðgarðsvörður á móti okkur og eftir smá spjall við krakkana var okkur ekki til setunnar boðið, því næsti áfangi var Bæjarstaðaskógur. Ferðin inn í Bæjarstaðaskóg gekk vel fyrir sig og var stoppað reglulega þar sem Regína sagði krökkunum aðeins frá staðháttum. Þegar við vorum komin á áfangastað skelltu sumir sér í ána en aðrir létu sér nægja að fylgjast með og skoða sig aðeins um. Gangan til baka gekk heldur hægar fyrir sig enda margir orðnir lúnir og jafnvel blautir. Til gamans má geta þess að á vef Vatnajökulsþjóðgarðs er þessi ganga sögð vera 13 km. löng og taki um fimm tíma. Þegar við komum til baka í Hofgarð var farið að huga að kvöldverði og gerðu þreyttir ferðalangar honum góð skil. Um kvöldið var síðan kvöldvaka þar sem hvert skemmtiatriðið rak annað og skemmtu allir sér vel. Á miðvikudeginum var ræst kl. 7:30 og morgunmatur snæddur og jafnframt drifið í að ganga frá öllum farangri og þrífa. Leið okkar lá síðan aftur í Skaftafell þar sem nemendum var skipt í 8 hópa og jafnmargar stöðvar skipulagðar í þjóðgarðinum.  Við enduðum síðan dvöl okkar í þjóðgarðinum á því að grilla saman. Að því loknu stigum við um borð í okkar langferðabíla og héldum heim á leið. Við viljum þakka Grunnskólanum í Hofgarði fyrir að hýsa okkur og Regínu, þjóðgarðsverði fyrir að sinna okkur vel og þar með gera góða ferð enn betri. Að lokum er rétt að þakka öllum jafnt nemendum sem starfsfólki fyrir ánægjulega ferð sem vonandi skilur eftir góðar minningar.         

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica