Berjaferð í Haukafell
Í dag, fimmtudag fóru nemendur í 1. – 4. bekk í berjamó og eins og svo oft áður var stefnan tekin í Haukafell. Veður var ágætt, örlítið svalt en í Haukafelli er alltaf hægt að finna sér skjól. Berjaspretta er greinilega góð þetta árið því krakkarnir áttu ekki í neinum erfiðleikum með að finna ber og nokkrir gerðu mikla leit að hrútaberjum sem fundust svo inn á milli trjána. Eins og í öllum góðum ferðum var borðað nesti og boðið var upp á heitt kakó.



