Fréttir Grunnskóli
Hlaupið á Sindarvöllum
Hlaupið á Sindarvöllum

Göngum, hlaupum, hjólum í skólann.

07.09.2011

Miðvikudaginn 7. september kl. 10.00 verður Göngum í skólann verkefnið formlega sett af stað  í Síðuskóla á Akureyri.

Grunnskóli Hornafjarðar tekur að venju þátt í verkefninu Göngum í skólann. Starfsmenn, foreldrar og nemendur eru alltaf hvattir til að hjóla eða ganga í skólann en sérstaklega þennan mánuðinn.

Vikuna 26. - 30. sept. fá  nemendur sendan hreyfibækling heim þar sem þeir skrá hreyfingu sína yfir daginn. Með þessum hreyfibæklingi verður komið af stað smá keppni milli bekkja til að styðja enn meir við verkefnið.

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica