Unicef- hreyfingin
Grunnskóli Hornafjarðar tók þátt í Unicef-hreyfingunni eins og undanfarin ár. Í ár voru það krakkarnir í 1. – 9. bekk sem tóku þátt, því 10. bekkur var í skólaferðalagi.
Krakkarnir voru mjög dugleg og var einn einstaklingur sem hljóp 60 hringi, samtals 24 km. Krakkarnir söfnuðu 196.000 kr. og kemur sá peningur sér vel fyrir Unicef-hreyfinguna.
Hér að neðan eru nokkur atrið sem Unicef á Íslandi leggur áherslu á og sá peningur sem safnaðist hér verður notaður til að styðja þessi verkefni.
- Lífsafkoma og þroski ungra barna: Að veita yngstu börnunum góða byrjun í lífinu, veita börnum lífsnauðsynlegar bólusetningar og aðra heilsugæslu.
- Menntun og jafnrétti: Að veita öllum börnum, jafnt stúlkum sem drengjum, góða grunnmenntun og ýta undir jafnrétti kynjanna.
- HIV/alnæmi: Að fyrirbyggja HIV-smit, veita umönnun til smitaðra og sjá til þess að börnum sem eru munaðarlaus af völdum alnæmis sé veittur stuðningur og umönnun.
- Barnavernd: Að byggja upp verndandi umhverfi fyrir börn, koma í veg fyrir að þau séu misnotuð, beitt ofbeldi eða vanrækt.
- Réttur barna og þátttaka: Að auka þátttöku barna í samfélaginu og fræðslu um réttindi þeirra.
Því miður er ekki hægt að birta nýjar myndir með þessari frétt því myndavélin sem notuð var hefur verið pakkað niður í Heppuskóla eins og öllum öðrum gögnum þar. Nú eru að hefjast breytingar á Heppuskóla sem fela í sér að skipt verður um glugga þar, anddyrinu breytt og klæðingin tekin í gegn.


