Fréttir Grunnskóli
Sigurliðið Frumurnar í 7. bekk GH
Legókeppnin 2010

Frumurnar hefja keppni á morgun

31.05.2011

Frumurnar hefja keppni í Delft í Hollandi á morgun.  Frumurnar eru legóhópur Grunnskólans, skipaður 10 nemendum úr 7. bekk, sem vann legókeppnina á Íslandi í nóvember í fyrra.  Nú fara Frumurnar sem fulltrúar Íslands til Hollands þar sem þær taka þátt í Evrópukeppninni. 

Frumurnar lögðu af stað frá Hornafirði um miðjan dag í gær og flugu út eldsnemma í morgun.  Það var mikill spenningur í keppendum og fararstjórum þeirra og víst að hópurinn er að fara að takast á við ógleymanlega hluti.

Frumurnar munu setja fréttir af sér daglega inn á bloggsíðuna sína sem er hægt að nálgast hér.  

Heimasíða keppninnar er http://www.flloecdelft.org/tournament/schedule og þar verður hægt að fylgjast með keppninni í heild.

Frumunum óskum við góðs gengis í Hollandi og hlökkum til að heyra frá þeim.

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica