Vordagar hjá 2. bekk SÞ
2. bekkur SÞ hefur lagt land undir fót undanfarna daga og skoðað söfnin í bænum. Við byrjuðum á að skoða verbúðina í Miklagarði í tengslum við þemaverkefni um hafið sem bekkurinn var að vinna að.
Síðan fórum við og skoðuðum Byggðasafnið, ekki bara til að skoða alla munina sem safnið geymir, við fórum líka til að skoða hluta af verkefni um íslenska fugla, sem bekkurinn vann fyrir jólin, sem nú má finna á Byggðasafninu. Börnin máluðu stórar og fallegar myndir af þremur fuglum, Himbrima, Haferni og Tjaldi og skrifuðu um þá litlar ritgerðir. Björn Arnarson á Byggðasafninu hengdi síðan þessar myndir upp á vegg ásamt ritgerðum barnanna og nú geta allir sem vilja farið og skoðað. Við enduðum síðan þessa safnadaga á því að skoða Jöklasafnið. Þar tók hún Guðný Svavars vel á móti okkur. Við byrjuðum á því að horfa á fræðslumynd um eldgos í Vatnajökli undanfarna áratugi og síðan fengu börnin að leika lausum hala um safnið og skoða það að vild. Allar þessar heimsóknir voru ákaflega skemmtilegar og fróðlegar, börnin voru mjög áhugasöm og þurftu margs að spyrja. Safnadagar að vori munu örugglega verða endurteknir.
2. bekkur SÞ og Styrgerður kennari



