Fréttir Grunnskóli
10. bekkur GH vor 2011
10. bekkur GH vor 2011
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

Höfn, umhverfisvænn heilsubær og eldfjallavinna

26.05.2011

Dagskrá síðustu daga skólans fór heldur betur úr skorðum á unglingastiginu þegar gos hófst í Grímsvötnum. 

7., 8. og 10. bekkur áttu allir að vera í skólaferðalögum en vegna gossins var ferðalögum 7. og 8. bekkjar frestað fram á haust en útskriftarferð 10. bekkjar var farin þó hún væri með öðru sniði en til stóð og tókst reyndar með ágætum.

En nemendur í 7. - 9. bekk hafa þó ekki verið verkefnalausir heldur hafa þeir sökkt sér niður í þemavinnu. Kennarar í 7. og 8. bekk gripu að sjálfsögðu tækifærið og stóðu fyrir þemavinnu um eldgos og eldfjöll þar sem sköpunarkrafturinn hefur heldur betur fengið að njóta sín.  Eldfjöll hafa verið teiknuð, búin til úr gifsi, máluð, það hefur verið skrifað um þau, fylgst með fréttaflutningi af þeim og svo mætti lengi telja.  Í upphafi skólaslita á mánudag stendur til að láta nokkur eldfjallanna gjósa fyrir utan skólann um leið og götuleikhúsið sýnir listir sínar. 

Nemendur í 9. bekk hafa einbeitt sér að þemavinnu í samfélagsfræði undanfarna daga þar sem viðfangsefnið er Höfn, umhverfisvænn heilsubær.  Þar hafa nemendur farið á flug við að útfæra hugmyndir sínar um það hvað væri hægt að gera til að styrkja bæinn í að vera umhverfisvænan heilsubæ. Í hádeginu á föstudag verður foreldrum 9. bekkinga boðið að sjá afrakstur verkefnisins ásamt fulltrúum frá bæjarfélaginu. 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica