Fréttir Grunnskóli
Grunnskóli Hornafjarðar 2011
Legóhópurinn Frumurnar
Mynd 2 af 2
1 2

Frumurnar á leið til Hollands

19.05.2011

Nú er heldur betur farið að styttast í að legóhópurinn Frumurnar fari á Evrópumótið í legó en mótið fer fram í Delft í Hollandi 2. – 4. júní.

Það er mjög dýrt að fara í ferð sem þessa og hefur hópurinn bæði óskað eftir styrkjum auk þess sem krakkarnir hafa sjálfir safnað pening. Fjölmargir aðilar hafa lagt okkur lið og þökkum við þeim öllum fyrir. Í dag fór hópurinn í Landsbankann en hann bæði styrkir hópinn með fjárframlagi og gefur þátttakendum töskur fyrir ferðalagið. Þá fengu krakkarnir líka afhentan styrk frá Kiwanisklúbbnum Ós en hópurinn hjálpaði til við sölu K lykilsins í síðustu viku.
Legóhópurinn mun segja frá ferðum sínum á http://lego-frumurnar.bloggar.is/ -

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica