Öræfaferð hjá 3.bekk vor 2011
Mánudaginn 16. maí fór 3. bekkur í vorferð í Öræfin, þegar við vorum búin að ná í matinn á Víkina og súkkulaðikökuna í bakaríið þá lögðum við af stað í ferðalagið okkar.
Fyrsta stopp var við Nesjaskóla, við löbbuðum einn hring í kringum húsið og kíktum á gluggana þar sem við höfðum verið í 1.bekk. Næst var stoppað við Hrollaugshóla og þar borðuðum við nesti í blíðskaparveðri og fórum í brennó, 3.B á móti 3.E. Áfram ókum við og stoppuðum aðeins hjá Jökulsárlóninu, fórum ekkert út en kíktum hvort við sæjum seli og spáðum í hvað jakarnir væru stórir. Við stoppuðum næst við Kvíárjökulkamb, hentum „nokkrum“ steinum í ána og nutum þess að vera úti í góða veðrinu.
Einar og Aron tóku á móti okkur í Hofsnesi og við gerðum okkur klár í kajakana. Þrjú börn unnu saman, einn sigldi og tveir voru hjálparmenn og svo skiptust þau á, 10 bátar í hverri ferð. Þetta var ótrúlega gaman, mikið fjör, mikil spenna og nokkrir urðu blautir. Þegar við komum aftur í rútuna þá brunuðum við í Hofgarði til að finna þurra sokka og sumir þurftu þurra skó.
Næst lá leiðin inn í Skaftafell og þá keyrðum við inn í alveg nýtt veður en ákváðum samt að þramma upp að Svartafossi. Á þeirri stuttu gönguleið breyttist rigningin í snjókomu og við urðum ansi blaut. Börnin voru samt ótrúlega dugleg og eiga mikið hrós skilið fyrir hvað þau tóku þessu veðri vel. Þannig að þegar við komum í rútuna aftur var ekkert annað í boði en að bruna í Hofgarð aftur og úr blautu fötunum og fara í náttbuxur og hafa það notalegt enda klukkan orðin rúmlega fimm. Í Hofgarði var þurrt veður.
Börnin komu sér fyrir, spiluðu, léku sér og við reyndum að þurrka blauta dótið, og svo borðuðum við kvöldmat. Á kvöldvökunni fórum við í leiki og skemmtum okkur vel. Eftir kvöldvökuna fengum við okkur súkkulaðiköku og mjólk og fórum svo að græja okkur í svefninn. Um ellefuleytið voru börnin sofnuð, enda þreytt og sæl eftir góðan og skemmtilegan dag.
Á þriðjudagsmorgni vöknuðum við í sólskini og þegar búið var að borða morgunmat og ganga frá þá löbbuðum við saman að Hofskirkju, fallegr, gamalli sveitakirkju með torfþaki, byggð árið 1884 og svo var reiknað hvað kirkjan væri gömul, nokkrir stærðfærðisnillingar í hópnum voru nú ekki lengi að því.
Næst keyrðum við að Skaftafelli til að skoða vatnadrekann og nú var svolítið öðruvísi veður í Skaftafelli, sól og blíða. Við skoðuðum vatnadrekann hátt og lágt, borðuðm nesti og fundum litla tjörn til að vaða í og veðrið lék við okkur. Við keyrðum svo að minnismerkinu um brúna sem fór illa í flóðinu 1996 og renndum okkur aðeins þar.
Á leiðinni heim stoppuðum við og skoðuðum Víti, djúpa holu eftir ísjaka, borðuðum nesti aftur við Hrollaugshóla og brunuðum svo heim, sæl og ánægð eftir góða ferð.



