Árshátíðarundirbúningur á fullu
Nú er allt á öðrum endanum í skólanum því nemendur og starfsmenn eru á fullu við að leggja lokahönd á undirbúnig fyrir árshátíð skólans sem hefst kl. 17:30 í Íþróttahúsinu í dag.
Þema sýningarinnar er skólinn og skólalög og eru allir velkomnir í Íþróttahúsið í dag til að njóta þess að sjá unga listafólkið okkar stíga á svið og rifja um leið upp liðna skóladaga.
Allir nemendur skólans koma að árshátíðarundirbúningi á einn eða annan hátt. Nemendur oddatölubekkjanna og 10. bekkjar sjá um skemmtiatriðin en hinir bekkirnir sjá um skreytingar og veitingar.
Húsið opnar kl. 17:00 og gefst gestum kostur á að gæða sér á veitinum áður en sýningin hefst.
Aðgangseyrir er 500 kr fyrir einstakling en aldrei meira en 1000 kr á fjölskyldu og á hann fyrst og fremst að standa straum af kostnaði við veitingar og annað á árshátið.



