Fréttir Grunnskóli
Stóra upplestrarkeppnin 2011 GH
lokahatid2011allirvef
Mynd 3 af 3
1 2 3

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á Suð-Austurlandi

23.03.2011

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar  á Suð-Austurlandi fór fram í Hafnarkirkju í dag. Þar lásu 11 nemendur úr 7. bekk þriggja grunnskóla á svæðinu; Grunnskóla Djúpavogs, Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskólanum í Hofgarði. Lokahátíðir eru haldnar í hverjum landshluta fyrir sig og veita Sparisjóðirnir verðlaun þremur efstu keppendunum.   

Í inngangsorðum sínum fyrir keppnina sagði Baldur Sigurðsson formaður dómnefndar að áhersluatriði Stóru upplestrarkeppninnar, sem hann vildu þó fremur kalla hátíð, væru fyrst og fremst þrennskonar; vandaður flutningur á móðurmálinu, virðing fyrir móðurmálinu og að njóta móðurmálsins.  Einnig sagði hann að góður upplestur kæmi ekki af sjálfu sér heldur væri hann afrakstur þrotlausra æfinga.  En þeir sem hafa náð tökum á góðum upplestri njóta þess alla ævi.  Þannig hafa margir fengið tækifæri í lífinu fyrst og fremst vegna þess að þeir eru góðir upplesarar. 

Stjórnandi á lokahátíðinni var Alrún Irene A Stephensdóttir sem sigraði í keppninni í fyrra. Auk upplesaranna komu fram á hátíðinni nemendur úr Tónskóla Djúpavogs og Tónskóla Hornafjarðar.

Þeir sem fóru með sigur af hólmi í Stóru upplestrarkeppninni að þessu sinni voru; í fyrsta sæti Ragnar Sigurður Kristjánsson Grunnskóla Djúpavogs, Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir Grunnskóla Hornafjarðar í öðru sæti og í þriðja sæti Sigrún Salka Hermannsdóttir Grunnskóla Hornafjarðar.

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica