Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á Suð-Austurlandi
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á Suð-Austurlandi fór fram í Hafnarkirkju í dag. Þar lásu 11 nemendur úr 7. bekk þriggja grunnskóla á svæðinu; Grunnskóla Djúpavogs, Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskólanum í Hofgarði. Lokahátíðir eru haldnar í hverjum landshluta fyrir sig og veita Sparisjóðirnir verðlaun þremur efstu keppendunum.
Í inngangsorðum sínum fyrir keppnina sagði Baldur Sigurðsson formaður dómnefndar að áhersluatriði Stóru upplestrarkeppninnar, sem hann vildu þó fremur kalla hátíð, væru fyrst og fremst þrennskonar; vandaður flutningur á móðurmálinu, virðing fyrir móðurmálinu og að njóta móðurmálsins. Einnig sagði hann að góður upplestur kæmi ekki af sjálfu sér heldur væri hann afrakstur þrotlausra æfinga. En þeir sem hafa náð tökum á góðum upplestri njóta þess alla ævi. Þannig hafa margir fengið tækifæri í lífinu fyrst og fremst vegna þess að þeir eru góðir upplesarar.
Stjórnandi á lokahátíðinni var Alrún Irene A Stephensdóttir sem sigraði í keppninni í fyrra. Auk upplesaranna komu fram á hátíðinni nemendur úr Tónskóla Djúpavogs og Tónskóla Hornafjarðar.
Þeir sem fóru með sigur af hólmi í Stóru upplestrarkeppninni að þessu sinni voru; í fyrsta sæti Ragnar Sigurður Kristjánsson Grunnskóla Djúpavogs, Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir Grunnskóla Hornafjarðar í öðru sæti og í þriðja sæti Sigrún Salka Hermannsdóttir Grunnskóla Hornafjarðar.



