Fréttir Grunnskóli
8.-K-med-kennaranum-sinum
8.-B-med-kennaranum-sinum
8. B með kennaranum sínu en þau unnu verkefni með Vísindavefnum

Háskóli unga fólksins á ferð um landið

22.03.2011

 

Háskóli unga fólksins, HUF, hefur verið starfræktur á vegum Háskóla Íslands frá árinu 2004 og notið mikilla vinsælda.. Í tilefni aldarafmælis HÍ 2011 verður starfsemi HUF með hátíðarsniði og skólinn á faraldsfæti.   Þar ber hæst  ferð Háskóla unga fólksins með svokallaðri Háskólalest sem heimsækir níu áfangastaði á landinu í samstarfi við Rannsóknarsetur HÍ á landsbyggðinni, grunnskóla, sveitarfélög o.fl.

Háskólalestin verður á Hornafirði 13. og 14. maí og mun nemendum í 7. - 10. bekk þá bjóðast að sækja hin ólíklegustu námskeið.  Til viðbótar við námskeið fyrir unga fólkið verður fjölþætt dagskrá fyrir alla aldurshópa á hverjum áfangastað, viðburðir, uppákomur, örfyrirlestrar og margt fleira.

Nú hefur einn bekkur riðið á vaðið og hafið samstarfið við Háskólann en það var 8. B sem vann verkefni með Vísindavefnum í síðustu viku og hér má lesa frétt af því inn á Vísindavefnum. 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica