Hæfileikakeppni, marsering og margt fleira
Yngri börnin í skólanum bíða öskudags með óþreyju og finnst gaman að hittst í skólanum og skoða búningana hvert hjá öðru og gera skemmtilega hluti saman. Þar var öskudagsball eins og vera ber, kötturinn (nammi) var sleginn úr tunnu (kassa) og svo var hæfileikakeppni þar sem fjölmargir snillingar stigu á stokk. Myndir segja meira en mörg orð og fylgja nokkrar hér með.



