Fréttir Grunnskóli
Árshátíð 2010
Arshatid-037-vef
Nemendur í fyrsta bekk dönsuðu Fugladansinn og sungu lagið Ligga ligga lá

Skýrsla vegna úttektar á skólanum

01.02.2011

Nú hafa starfsmenn matsfyrirtækisins Hitt og þetta skilað inn skýrslu sem unnin var vegna úttektar á skólanum.  Skýrslan er aðgengileg hér og hvetjum við þá sem eru áhugasamir um skólastarf á Hornafirði að kynna sér hana.  Í skólanum verður skýrslan notuð til að styrkja innviði skólans og er ýmsar gagnlegar ábendingar að finna í henni. 

Menntamálaráðuneytinu ber að sinna mati á skólum og varð Grunnskóli Hornafjarðar fyrir valinu að þessu sinni ásamt nokkrum öðrum skólum eftir að bæjarstjórn Hornafjarðar hafði boðið skóla sveitafélagsins fram.  Í erindisbréfi vegna úttektarinnar segir m.a. að markmið úttektarinnar sé að leggja mat á starfsemi skólans með hliðsjón af gildandi lögum um grunnskóla, reglugerðum og aðalnámskrá grunnskóla. Í úttektinni skal m.a. áhersla lögð á stjórnun, skipulag kennslu, innra mat, námskröfur og fyrirkomulag námsmats. Úttektin skal einnig beinast að mati og eftirliti sveitafélagsins með skólastarfi og hvernig það nýtist skólanum.

 

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica