Droplaug kvödd
Um áramót lætur Droplaug Jónsdóttir af störfum hjá skólanum eftir rúmlega 24 ára farsælt starf og sest í helgan stein.
Það er ekki á hverjum degi sem fólk stendur á þessum tímamótum í skólanum og í tilefni þess komu starfsmenn saman í kveðjusamsæti Droplaugu til heiðurs. Höfðu menn á orði að þeir vildu fá að njóta starfskrafta hennar áfram í formi spádóma og fyrirboða og gáfu henni m.a. bókina Hver er ég í kveðjugjöf ásamt skartgripum. Starfsfólk Grunnskólans þakkar Droplaugu samstarfið í gegnum árin og óskar henni velfarnaðar á komandi árum.


