Fréttir Grunnskóli
Sigurliðið Frumurnar í 7. bekk GH
Legókeppnin 2010
Frumurnar ásamt þjálfaranum Eiríki Hanssyni.  Efri röð frá vinstri: Auðunn Hafdal, Ingibjörg Valgeirsdóttir, Eiríkur Hansson, Sigrún Salka Hermannsdóttir, Sigrún Birna Steinarsdóttir, Inga Kristín Kristjánsdóttir, Stefán Reynir Jónsson.  Neðri röð frá vinstri; Hildur Ósk Hansdóttir, Ingibjörg Lúcía  Ragnarsdóttir, Hafdís Lára Sigurðardóttir og Eyjalín Harpa  Eyjólfsdóttir
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

Frumurnar sigruðu Legókeppnina

15.11.2010

 

Frumurnar, lið Grunnskóla Hornafjarðar sigraði hina árlegu First Lego League keppni sem haldin var í Keili í Keflavík, laugardaginn 13. nóvember. Frumurnar eru 10 nemendur úr 7. bekk og er Eiríkur Hansson kennari þjálfarinn þeirra.  Keppnin er fjölþætt og reynir á krakkana á marga vegu. Meðal annars þá hönnuðu þau, smíðuðu og forrituðu róbót sem leysti flóknar þrautir borði. 

Þema keppninnar í ár var BODY FORWARD (líkaminn lifi). Keppendur áttu að fjalla um eitthvað sem gæti hjálpað líkamanum þegar sjúkdóma eða slys ber að höndum.

Frumurnar fjölluðu um brunasár og meðferð þeirra. Þau kynntu nýja uppfinningu sína sem heitir KÆLIBINDIÐ, en það er ný útfærsla af kælipoka til að kæla brunasár.

Frumurnar munu keppa fyrir hönd Íslands á Evrópumóti í Hollandi í vor.

Þess má geta að þetta er í þriðja sinn sem lið úr 7. bekk sigrar þessa keppni og fer erlendis til að keppa fyrir hönd Íslands.  Öll þessi þrjú lið eru núna í skólanum auk þess sem fjórða liðið var í 2. sæti í fyrra.

Á heimasíðu keppninnar má sjá frekari upplýsingar um hana http://firstlego.is/

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica