Norræni loftslagsdagurinn
Í tilefni af Norræna loftslagsdeginum 11. nóvember söfnuðust nemendur og starfsfólk skólans saman á sparkvellinum undir íþróttahúsinu og önduðu að sér ferska loftinu. Hulda Laxdal skólastjóri stjórnaði nokkrum öndunaræfingum og hvatti síðan nemendur og starfsfólk til að segja hvort við annað "mikið erum við heppin að eiga svona gott andrúmsloft". Og loftið í dag var aldeilis ferskt og gott, norðan garri og hiti við frostmark en þá er loftið einmitt ákaflega ferskt.



