Íslenskir þjóðhættir í 4. bekk
Það var mikið um að vera hjá 4. bekk M í gær. Krakkarnir hafa verið að læra um íslenska þjóðhætti og af því tilefni voru þau með sýningu fyrir vini og vandamenn á verkefnum sínum. Þau höfðu fræðst var um heiti gömlu mánaðanna og þau verk sem unnin voru á hverjum árstíma. Til að kynnast þessu efni enn betur var Byggðasafnið heimsótt og þar fengu krakkarnir að sjá með eigin augum gamla muni.
Áhorfendum fengu að heyra þennan fróðleik á sýningunni í gær í frásögn, söng og leik. Nemendur voru klæddir í anda þess tíma sem verið var að fjalla um og komu með muni að heiman og búin var til baðstofustemning. Jafnframt voru til sýnis vinnubækur sem í voru unnin ýmis verkefni og plaköt með upplýsingum og myndum af gömlum munum. Síðast en ekki síst var gerð eftirlíking af gömlum torfbæ sem nefndur var Hólar og tókst smíðin vel en var vandað vel til verksins.



