Fréttir Grunnskóli
Heimsókn 4 bekkjar í dagvist aldraðra
Heimsókn 4 bekkjar í dagvist aldraðra
Mynd 1 af 7
1 2 3 4 5 6 7

Brúum kynslóðabilið - OLE2

01.10.2010

Það var handagangur í öskjunni á mánudaginn 27. september og í dag þegar nemendur úr 4. bekk Grunnskóla Hornafjarðar heimsótti dagvist aldraðra.

Heimsókn þeirra er hluti af verkefninu OLE2 sem HSSA tekur þátt í á vegum Norðurslóða áætlunarinnar. Tilgangur verkefnisins er að leiða saman unga og aldna í hagnýtum verkefnum. Krakkarnir kynnast því sem eldri borgarar eru að sýsla við í dagvist og þau fá einnig aðstoð við nám sitt í verkefninu "komdu og skoðaðu íslenska þjóðhætti".

Meðfylgjandi myndir gefa tóninn hve góð stemming var hjá þessum tveimur aldurshópum.

Næsta heimsókn er eftir mánuð.

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica