Ferð á Lónsöræfi með 10. bekk
Það voru þrjátíu og fimm nemendur úr 10. bekk Grunnskóla Hornafjarðar ásamt fjórum kennurum og Jóni Bragasyni sem fóru í þriggja daga ferð í Lónsöræfi þann 22.-24. september.
Ferðin var farin eftir samræmd könnunarpróf sem voru í byrjun vikunnar og var tilgangur ferðarinnar margþættur, m.a. að þjappa hópnum saman, fræðast um þetta einstaka svæði sem Lónsöræfi eru, þjálfa nemendur að ganga í fjalllendi og skriðum og að læra að undirbúa sig fyrir svona ferð.
Farið var á fjórum bílum og gekk ferðin upp eftir ágætlega, ekki nema einn bíll sem bilaði og þurfti þá einn hópurinn að ganga aukalega í hálftíma áður en hann komst að Illakambi og gat farið þar niður. Þeir sem voru þá komnir í kofann gengu Gjögrið á meðan restin af hópnum var að koma sér í skálann. Síðar um daginn gekk allur hópurinn að Þilgili (Kambagili) en á leiðinni til baka var hópurinn fljótur að hlaupa niður skriðurnar til að komast í skálann og gæða sér á Seljavallaborgurum. Það kvöldið voru sagðar draugasögur eins og gerist og gengur í svona ferðum. Það var gist í báðum skálunum þannig að þeir sem treystu sér ekki að hlusta á draugasögur rétt fyrir svefninn gátu verið í hinum kofanum og haldið áfram að syngja með þeim sem þar voru. Daginn eftir var haldið snemma af stað þegar búið var að gæða sér á hafragraut og smyrja nesti, enda löng leið fyrir höndum. Það var farið yfir Brenniklett og upp að Tröllakrókum, horft yfir að Egilsseli og niður í Víðidal og gengið niður á ,milli Gilja“. Eitt af því sem þykir ótrúlega skemmtilegt í svona ferðum er að hlaupa niður skriðurnar en nóg er af þeim á Lónsöræfum. Ekki voru kræsingarnar í kvöldmatnum af verri taginu, grillað lambalæri hvarf ofan í sársvangann og sælan mannskapinn og við tók söngur langt fram á kvöld. Flestir voru nú orðnir frekar þreyttir seinna kvöldið og ekki þurfti að hafa eins mikið fyrir því að koma mannskapnum í rúmið og kvöldið áður. Seinasti dagurinn fór í það að ganga frá og koma sér til byggða og gekk það stórvel.
Við vorum mjög heppin með veður alla dagana og svakalega ánægð yfir því að lenda ekki í þessari rigningu sem nú herjar á okkur Hornfirðinga. Núna eru nemendur að vinna verkefni tengd hálendi Íslands, þjóðgörðum og Lónsöræfum. Afrakstur þeirrar vinnu verður svo á sérstöku kaffihúsakvöldi sem foreldrum er boðið að koma á. Nemendur voru gífurlega ánægðir með ferðina og stóðu sig mjög vel. Í gönguferðunum urðu nemendur fyrir áhrifum frá stórfenglegri náttúru svæðisins. Sumir fóru jafnvel að yrkja ljóð og urðu eftirfarandi erindi m.a. til.
Í fjallgöngu traðkað í móum og tryssum.
Tuðandi ungmeyjar drösluðust leiðir
þrusandi þulum í brotum og skissum
Þilgilið framandi sjónin úr heiði.
Heimleiðis haldið á sárugum hælum.
Þrautseigur hópurinn glaður.
Dofnandi bergmál af vælum og skælum.
Í langferð sem þessari dugar ei daður.
---------------------------------------------------------
Þrusaðist þaulvanur hópurinn
Þilgilið saman í
frísklega, þreyfaði fóturinn
ferlegt hvað hann hefur komið sér í.
Ferðin inn á Lónsöræfi er styrkt af Need verkefninu. NEED er skammstöfun fyrir verkefnið Northern Environmental Education Development project sem á íslensku mætti þýða sem Uppbygging náttúruskóla og umhverfismenntar á norðurslóðum. NEED er fjölþjóðlegt samstarfsverkefni Íslendinga, Finna, Norðmanna og Íra. Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins (Northern Periphery Programme 2007-2013) er aðalstyrktaraðili þess. Verkefninu er ætlað að þróa nýjar og frumlegar aðferðir til þess að miðla þekkingu um umhverfi og náttúru friðlýstra svæða til þeirra ferðamanna, nemenda og annarra aðila sem sækja þau heim eða búa í nágrenni þeirra.
Miðpunktur verkefnisins hér á landi er Vatnajökulsþjóðgarður og eru helstu samstarfsaðilar hérlendis Fræðasetur Háskóla Íslands á Hornafirði (verkefnisstjórn), Þekkingarsetur Þingeyinga (norðursvæði), Þekkingarnet Austurlands (austursvæði), Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu (suðursvæði) og Kirkjubæjarstofa (vestursvæði). Á hverju svæði eru jafnframt staðbundnir klasar og Grunnskóli Hornafjarðar hluti af suðursvæðinu.



