Glímukynning
Miðvikudaginn 15. september kom Ólafur Oddur Sigurðsson margfaldur íslandsmeistari í glímu í heimsókn til okkar. Hann kom á vegum Glímusambands íslands í þeim tilgangi að kynna íslenska glímu en Ólafur hefur farið vítt og breitt um landið að kynna glímuna.
Að þessu sinnu voru það nemendur úr 5-10.bekk sem fengu að kynnast þessari þjóðaríþrótt okkar Íslendinga. Hver bekkur fékk kynningu sem stóð í um 20 mínútur. Byrjað var á að fara í sögu glímunnar og reglurnar henar. Eftir það fékk Ólafur einhvern úr bekknum upp til sín og var bekknum sýnt nokkur skemmtileg glímutök svo sem hælkrókur, klofbragð, leggjabragð og sniðglíma á lofti. Þegar hópurinn var kominn undirstöðuatriði glímunnar á hreint þá fengu allar glímubelti og fóru að takast á um allan sal.



