Fréttir Grunnskóli
Berjaferð haust 2010 í Haukafell
Berjaferð haust 2010 í Haukafell
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

Ferð í Haukafell

15.09.2010

  

 

Farið var í mjög skemmtilega berjaferð í Haukafell miðvikudaginn 1. september. Farið var á rútum með alla úr 1. – 4. bekk. Við byrjuðum á að fá okkur epli þegar við komum á staðinn og á eftir fengum við heitt kakó. Allir nutu þess að borða úti í náttúrunni enda var veðrið mjög gott. Sólin skein og við fengum 15° hita.
Töluvert var tínt af bláberjum, eitthvað af krækiberjum og einnig fundust nokkur hrútaber. Sumir tíndu sveppi og notuðum við bók til að sjá út hvaða sveppi má borða.
Allir voru mjög ánægðir eftir ferðina.

Takk fyrir okkur

3. bekkur E

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica