Fréttir Grunnskóli
Bergardalur-1.-sept-1
Bergardalur-1.-sept-1
Hress hópur in á Bergárdal á gönudegi 1. sept

Skólastarf komið í gang, áhersla á heilsueflandi skóla

03.09.2010

Nú er skólastarf komið í fullan gang og fyrsta vikan um garð gengin.  Nemendur og starfsmenn komu hressir og endurnærðir eftir sumarfríið, fullir starfsorku. Um miðjan ágúst sátu starfsmenn skólans tvö námskeið saman, annað um uppeldi til ábyrgðar og hitt um samskipti á vinnustað og mótun góðs starfsumhverfis. 

Í vetur verður lögð sérstök áhersla á það að skólinn er heilsueflandi skóli.  Undir þann flokk fellur flest það sem snýr að nemendum og starfsmönnum s.s. mataræði, hvíld, hreyfing, félagsleg samskipt, forvarnir og geðrækt. Lögð er áhersla á að bjóða upp á hollan mat í skólanum og aðstaða nemenda til hreyfingar í frímínútum hefur verið stórbætt á síðustu árum.  Uppeldi til ábyrgðar er verkefni sem byggir upp félagslegan styrkleika einstaklinga og er einstaklega gott geðræktarverkefni. Í vetur viljum við styrkja skólann enn meira sem heilsueflandi skóla um leið og við leggjum áherslu á að efla tengslin við foreldra ekki síst í þáttum sem varða heilsueflingu.  Auk þess viljum við leggja áherslu á að efla tengslin við nærumhverfið s.s. íþróttafélagið, helstu stofnanir samfélagsins og atvinnulífið. 

Skólasetning að þessu sinni var með nýju sniði. Í stað þess að boða nemendur og foreldra saman á almennan fund þá var nemandi boðaður í viðtal til umsjónarkennara ásamt foreldrum sínum. Þetta nýja fyrirkomulag á skólasetningu mæltist almennt vel fyrir og verður örugglega notað aftur.

Kynningafundir fyrir foreldra eru þegar hafnir en á þeim er rætt um málefni sem varða foreldra sem hóp. Umsjónakennarar boða foreldra á kynningafundi og hvetjum við þá til að taka virkan þátt. 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica