Fréttir Grunnskóli
Vestmannaeyjar
Vestmannaeyjar
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

Öskufjúk í Eyjum

27.05.2010

Nemendur í 7. bekk er nú í skólaferðalagi í Vestmannaeyjum.  Stuttu eftir að þau komu þangað í gær fór að vinda og brast þá á öskufjúk.

Það var ekki bara askan í Eyjum sem fauk heldur kom hún einnig ofan af landi.  Vestmannaeyjaferðin er því tvöföld upplifun fyrir nemendur núna.  Þeir fá að upplifa hina einstöku sérstöðu Eyjanna eins og allir sem þangað koma en einnig að finna á eigin skinni hvernig það er að búa í nágrenni gosstöðvanna. 

Í dag er gott veður í Eyjum og ætla nemendur m.a. að skoða Náttúrugripasafnið og sigla í kringum Eyjarnar.  Á morgun halda þau svo heimleiðis.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica