Fréttir Grunnskóli
skolamyndir-049[1]
Öræfaferð 3. bekkjar
Það var skjól fyrir rigningunni undir aftanívagninum
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

Öræfaferð 3. bekkjar

27.05.2010

Þann 17. maí fór 3. bekkur í skólaferðalag í Öræfin. Ferðin hófst þó á Jöklasafninu þar sem Guðný Svavarsdóttir tók á móti hópnum. Safnið var skoðað gaumgæfilega en að því loknu var lagt í hann í frekar mikilli rigningu. Nesti var borðað að Hrollaugsstöðum og var þá regnið það mikið að nokkrir fundu sér skjól undir aftanívagni rútunnar. Þegar komið var að Jökulsárlóni fór lánið að leika við hópinn og hvar sem hann fór um eftir það var rjómablíða. Gengið var að Svartafossi, leikið sér á vatnadreka og um kvöldið  var glæsileg kvöldvaka með atriðum á heimsmælikvarða.

Þegar hópurinn lagðist á koddann má segja að allir hafi sofnað í takt.  Sama er ekki hægt að segja um það þegar vaknað var um morguninn.  Þá var málbein kvenþjóðarinnar farið að segja til sín með tilheyrandi spjalli fyrir allar aldir. Að morgni brottfarardags var farið í kajakaferð undir stjórn Einars og Arons á Hofsnesi og er skemmst frá því að segja að sú ferð sló í gegn en verst var að myndavél fararstjórans gleymdist. Sýndu margir snilldartakta við róðurinn í stærstu vatnsrennibraut heims. Það var því þreyttur en glaður hópur sem kom heim sem eflaust sofnað vært heima um kvöldið.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica