Hulda Laxdal, nýr skólastjóri við grunnskólann
Hulda Laxdal hefur verið ráðinn skólastjóri við grunnskóla Hornafjarðar í stað Þorvaldar Viktorssonar sem látið hefur af störfum sökum veikinda. Hulda lauk íþróttakennaraprófi frá Íþróttakennaraskóla Íslands árið 1980 og hefur starfað nánast óslitið við kennslu síðan auk þess að bæta við sig ýmiskonar menntun. 2003 lauk hún BS prófi í íþróttafræði og heilsuþjálfun, 2006 lauk hún Dipl.Ed prófi í menntunar og uppeldisfræðum með áherslu á stjórnun menntastofnana og núna vinnur hún að meistaraprófsritgerð um sömu mál.
Hulda þekkir vel til skólamála á Hornafirði en hún var kennari við Nesjaskóla frá 1998 - 2007 og aðstoðarskólastjóri þar frá 2002 - 2007.
Hulda mun hefja störf að hluta frá og með 17. maí en að fullu frá og með 1. júní. Hulda og Þórgunnur munu sjá um skólatjórn skólans í sameiningu þó Hulda verði mest á yngra stigi en Þórgunnur áfram á unglingastigi. Þórhildur Kristjánsdóttir deildarstjóri sérkennslu kemur að skólastjórn með þeim sem yfirmaður sérkennslumála við skólann en hún hefur leyst af sem skólastjóri í veikindum Þorvaldar.
Starfsfólk Grunnskóla Hornafjarðar býður Huldu Laxdal velkomna til starfa og óskar henni velfarnaðar í starfi.



