4. og 5. bekkur í Suðursveit
Námsferð Grunnskólans
Í vikunni fóru 4. og 5. bekkur Grunnskóla Hornafjarðar og Grunnskólans í Hofgarði í námsferð í Suðursveit. Gist var á Hrolllaugsstöðum, gengið inn í Þröng og þar komist í snertingu við Breiðamerkurjökul. Gangan tók rúma 5 tíma og má segja að nemendur hafi sannarlega staðið sig vel. Seinni daginn var farið í heimsókn út á Hala, farið í ratleik, dýrin og fiskaeldið skoðað og auðvitað farið í söguferð á Þórbergssetur. Hér á eftir er frásögn eins nemandans af ferðinni. Við nýttum ferðina í að skoða plöntur og steina, spá í landslag heyrðum sögur af ábúendum á Felli og margt fleira.
Á mánudagsmorgun klukkan hálf níu lögðum við, 4 og 5. bekkur af stað í Suðursveit. Sama dag fórum við í fjögra tíma göngu inn í þröng.
Við stoppuðum við jökulinn sem var Breiðamerkurjökull. Við löbbuðum frá kl 11:00 til 15:15. Þegar við komum á Hrollaugsstaði var fótboltamót, kvöldmatur og kvöldvaka. Á kvöldvökunni voru mörg skemmtiatriði síðan var farið að sofa Daginn eftir fórum við út á Hala í ratleik, fjárhúsið, fjósið, fiskeldið svo var farið að skoða Þórbergssetur síðan var grillað pylsur svo klukkan hálf þrjú lögðum við af stað heim
Það var mjög gaman.
Áróra Dröfn 5.R



