Fréttir Grunnskóli
Laugar 2010-974-vef
Laugar 2010-974-vef
Mynd 4 af 7
1 2 3 4 5 6 7

Laugar 2010

21.04.2010

 

 

Við lögðum af stað á sunnudagsmorgni 11. apríl kl 11:00, ferðinni var haldið á Laugar í Sælingsdal þar sem til stóð að dvelja í skólabúðum í eina viku. Við fórum suðurleiðina á Laugar og var það ekki lítil keyrsla, hvorki minna né meira en 10 tímar. Þegar við komum á Laugar þá var okkur skipt í herbergi sem voru bæði þriggja-, tveggja-, sjö- og áttamanna.  Auk okkar voru á Laugum nemendur úr Hraunvallaskóla í Hafnarfirði.  Áður en dagkrá vikunnar hófst þá var öllum skipt í þrjá blandaða hópa. Það var mikið að gera þarna á Laugum t.d lærðum við að galdra, gögla, tókum þátt í ræðukeppni og kynntumst mjög mikið af fólki. Við fengum mikið sjálfstraust, urðum minna feimin og þorðum að opna okkur miklu betur en við höfðum gert áður. Við gátum líka treyst fólki meira en áður af því það var mikil samvinna í því sem við vorum að gera. Kennararnir þarna voru mjög skemmtilegir og hugmyndaríkir. Á kvöldin var alltaf einhver dagsskrá sem nemendur máttu taka þátt í t.d brjóstsykursgerð, draugaferð, sundstuð og Laugaleikar þar sem þessir þrír hópar kepptu í ýmsim greinum. Svo var ferðinni heitið heim, en útaf gosinu í Eyjafjallajökli þurftum við að fara norður leiðina sem tók hvorki meira né minna en 14 klukkutíma. Við stoppuðum á  Greifanum á Akureyri til að fá okkur pítsu.  Íris Heiður Jóhannsdóttir og Gísli Már Vilhjálmsson fóru með okkur sem farastjórar og voru þau alveg frábær J. Krakkarnir sem við kynntumst voru rosalega skemmtilegir og stefna þau að koma í heimsókn næsta haust, sem er eftir að vera ógeðslega gaman J.

                        Anna Lilja Gestsdóttir, Ásdís Pálsdóttir og Þorgeir Dan Þórarinsson

 

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica