Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
Í dag lauk Stóru upplestrarkeppninni á lokahátíð í Hafnarkirkju. Þar leiddu saman hesta sína þeir 11 keppendur sem best hafa staðið sig í Grunnskóla Hornafjarðar og í Grunnskóla Djúpavogs. Keppnin var bæði skemmtileg og spennandi og náðu nemendur úr Grunnskóla Hornafjarðar í þrjú efstu sætin en Sparisjóðurinn gefur verðlaun þremur bestu lesurunum. Alrún Irene Stephensdóttir fór með sigur af hólmi, í öðru sæti var Guðrún Ósk Gunnarsdóttir og í þriðja sæti var Hafþór Snorrason. Sérstök aukaverðlaun hlaut Bjartur Elí Egilsson frá Grunnskóla Djúpavogs.



