Fréttir Grunnskóli
Skolahreysti-026a-vef
Skolahreysti-026a-vef
Stuðningsmennirnir skipta alltaf miklu máli
Mynd 1 af 3
1 2 3

Skólahreysti

05.03.2010

 

Austurlandsriðillinn í skólahreysti 2010 var að venju haldinn á Egilstöðum og voru það þau Anna Mekkín Reynisdóttir, Einar Ásgeir Ásgeirsson, Gunnar Örn Olgeirsson og Karen Björg Halldórsdóttir sem kepptu fyrir hönd okkar í Grunnskóla Hornafjarðar. Alls tóku 11 lið þátt í keppninni allsstaðar af Austfjörðum. Keppendur ásamt Kristni Þór lögðu af stað til Egilsstaða um 9 að morgni 4. mars sem var keppnisdagurinn.  Það vantaði að sjálfsögðu ekki stuðningsliðið sem  mætti á staðinn hresst og kátt rétt fyrir keppni eftir skemmtilega ferð gegnum firðina. Keppnin byrjaði stundvíslega klukkan 15:00 og fyrst voru upphýfingar þar sem Einar Ásgeir stóð sig glæsilega með 19 upphýfingar. Þar á eftir tóku stelpurnar við í armbeygjum þar sem Anna Mekkín endaði í  fyrsta sæti með 45 stykki. Svo var aftur komið að strákunum þar sem Einar Ásgeir tók 14 dýfur og Anna Mekkín fylgdi á eftir og hékk í 1 mínútu og 33 sekúndur í svokölluðu hreystigreipi. Í lokin var það svo hraðaþrautin þar sem Karen Björg og Gunnar Örn kepptu saman og voru á glæsilegum tíma, 2 mínútum og 21 sekúndu. Þau lentu í fyrsta sæti með lang besta tímann en næsti skóli á eftir þeim var 21 sekúndu lengur sem er glæsilegur árangur hjá krökkunum. Samanlagt lenti skólinn í 4-5 sæti með jafn mörg stig og Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar eða 42,5 stig. Ekki má gleyma frábæra stuðningsliðinu sem studdu við bak krakkana. Að keppninni lokinni fóru allir og fengu sér að borða og svo var bara skellt sér heim eftir þessa skemmtilegu keppni.

Anna Mekkín og Kristey Lilja.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica