Fréttir Grunnskóli
Halldor-Jorgenson-006-vef
Halldor-Jorgenson-006-vef
Nemendur í 6. og 7. bekk ásamt foreldrum
Mynd 1 af 3
1 2 3

Framkvæmdastjóri Microsoft spjallaði við 6. og 7. bekk og foreldra þeirra

23.02.2010

Mánudaginn 22. febrúar kom Halldór Jörgensson framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi í heimsókn til Hafnar.  Markmið hans með ferðinni var að fjalla um nýsköpun á sviði upplýsingatækni og almenna byggðaþróun og viðskiptatækifæri við heimamenn.  Einnig hitti hann nemendur í 6. og 7. bekk og fjallaði um netöryggi barna, unglinga og foreldra.  Fundurinn með 6. og 7. bekk var í Nýheimum og var foreldrum boðið að vera með.  Þar fjallaði Halldór almennt um netöryggi, og sagði m.a. frá því hvernig hægt væri að efla það á ýmsan hátt.  Halldór kom færandi hendi í heimsóknina og gaf skólanum prentara en einnig kom hann með fjórarar tegundir af bæklingum sem hann dreifði til nemenda og foreldra. 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica