Föstudagshátíð
Að þessu sinni var það 4. bekkur R sem hélt hátíðina. Auðbjörn og Kristinn sáu um kynninguna, Sóley Lóa, Ylfa, Díana, Tinna, Inga og Lelí fluttu brandara að því loknu frumfluttu krakkarnir söngleikinn Gamla konan og svínið. Í lokin sungu krakkarnir nýtt bekkjarlag, textinn er eftir Ragnhildi Einarsdóttir við lagið Nú er frost á fróni. Undirleikari var Kristín Jóhannesdóttir.



