Fréttir Grunnskóli
IMG_4398-vef
IMG_4398-vef
Birkir Þór fékk hárblásara frá Nettó
Mynd 9 af 13
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13

Bingókvöld í Heppuskóla

10.02.2010

Síðastliðinn þriðjudag ákváðum við nemendur í 9.bekk að halda bingókvöld til styrktar Laugarferðarinnar okkar og gekk það bara mjög vel, margir mættu og stemningin var góð. Við fórum í fyrirtækin á svæðinu og voru þau öll til í að styrkja okkur um vinninga.  Meðal vinninga sem við fengum voru hárblásarar, gjafabréf, ostakökur, lambalæri, gæs, snyrtivörur, kertaskreytingar og margt, margt fleira . Svo bökuðum við vöfflur og seldum líka heitt kakó.

Við viljum þakka öllum þeim sem styrktu okkur en það voru:

Blóm og Bróderí, Ferðaþjónustan Smyrlabjörgum, Flikk, Freyja-lakkrísverksmiðja, Hornabrauð, Hótel Höfn, Grænahraun, Nettó, Skinney – Þinganes.

Fyrir hönd 9. bekkjar

Vigdís María Borgarsdóttir








 

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica