Fréttir Grunnskóli
Bondadagur--vef
Bondadagur--vef
Nemendur í 1. - 6. bekk hlupu strax í morgunsárið og þeir fóru svo hratt yfir að erfitt var að ná myndum í myrkrinu
Mynd 1 af 9
1 2 3 4 5 6 7 8 9

Bóndadagur gengur í garð

22.01.2010

Að venju buðu hraustir drengir í skólanum "þorra í garð" að gömlum sið með því að hlaupa eða hoppa kringum skólann, sumir berfættir, á brókinni eða í annarri buxnaskálminni og sumir jafnvel berir að ofan.  Það er gamall siður að á fyrsta degi þorra áttu bændur að bjóða þorra í garð eða fagna þorra með því að fara fyrstir á fætur. “Áttu þeir að fara ofan og út í skyrtunni einni, vera bæði berlæraðir og berfættir, en fara í aðra brókarskálmina og láta hina svo lafa eða draga hana eftir sér á öðrum fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp bæjarhurðinni hoppa á öðrum fæti í kringum allan bæinn, draga eftir sér brókina á hinum og bjóða þorra velkominn í garð eða til húsa” (Saga daganna 1977 bls. 19)

Að þessu sinni fengu drengirnir óvenju hlýtt og gott veður enda lét sá sem lengst fór sig ekki muna um að hlaupa 48 hringi kringum skólann.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica