Þrívíddarhönnun og hljóð
Um helgina skipta nemendur skólans um smiðju og í dag luku nú fimmtán nemendur í 9. og 10. bekk námskeiði í tölvum sem kallast Þrívíddar hönnun og hljóð. Kennt var á frí forritin Google Sketch Up, Anim8or og Audacity. Eftir að hafa fengið kennslu í helstu stýringum á forritinu Google Sketch Up, byrjuðu nemendurnir á að hanna sitt drauma herbergi með tilheyrandi nútíma þægindum. Því næst fengu þau það verkefni að hanna nýja skólalóð og litu margar skrautlegar hugmyndir dagsljósið, m.a. dýragarður, tónlistarsvið, mótorkrossbraut og margt fleira. Næsta verkefni var nýsköpunarverkefni og fengu nemendur ljósmynd af hlut sem þau áttu að endurhanna, bæta eða breyta útliti. Finna nýtt hlutverk eða skoða frá nýju sjónarhorni. Eins og með skólalóðina komu margar skemmtilegar hugmyndir. Ein hugmyndin var t.d slökkvitæki sem er innbyggt í eldunarháf, ásamt neyðarhnappi. Önnur var örbylgjuofn með innbyggðu sjónvarpi.
Varla er hægt að finna hentugra forrit en Google Sketch Up fyrir byrjendur í þrívíddarhönnun. Forritið er mjög notendavænt, einfalt og reglulega uppfært af Google.
Næst fóru krakkarnir að læra á frí forritið Anim8or en það bíður upp á flóknari uppsetningu, en Google Sketch Up. Þar sem hægt er að setja upp senur og vista niður stutta video búta með hljóði. Krakkarnir lærðu á helstu stýringar forritsins en síðan var unnið í að gera stutt geimvideo eða einskonar trailer. Hér sjá einn slíkan trailer.
Önninni lauk svo með því að rætt var um þau störf sem þrívíddartæknin nýtist í, allt frá venjulegum iðnaði til auglýsinga, bíómynda og tölvuleikja. Nemendur sáu svo heimildarmynd um það hvernig þrívíddar fyrirtækið Pixar varð til.
Vilhjálmur Magnússon.



