Fréttir Grunnskóli
Bekkjartenglar09-10-002
Bekkjartenglar09-10-002
Fjölmennur fundur hjá stjórn foreldrafélags Grunnskólans

Stjórnarfundur í foreldrafélgi Grunnskólans

03.12.2009

Miðvikudaginn 2. desember var almennur fundur hjá bekkjartenglum í foreldrafélagi Grunnskólans.  Góð mæting var á fundinn þar sem vetrarstarfið var rætt, aðkoma foreldra að forvarnarvinnu, aukinn kostnaður við ferðalög nemenda og margt fleira. 

Ný stjórn var kosin í félaginu en hana skipa; Kolbrún Björnsdóttir sem er formaður, Helga Vilborg Sigjónsdóttir, Jóhann Hilmar Haraldsson og Vilhjálmur Magnússon. 

Í foreldrafélaginu eru allir foreldrar skólans en í hverjum bekk eru kosnir fulltrúar, svokallaðir bekkjartenglar sem sjá um að halda utan um starf foreldrafélagsins.  .   

Fundurinn var líflegur og lofar góðu um vetrarstarfið og skilaboðin frá nýrri stjórn til foreldra almennt eru m.a.:  Verum vakandi yfir velferð barna okkar og vinnum saman.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica