Fréttir Grunnskóli
Heimsókn til BB í opinni viku 09
Heimsókn til BB í opinni viku 09
Mynd 6 af 6
1 2 3 4 5 6

Opnir dagar í Hafnarskóla

18.11.2009

Á opnum dögum á barnastigi er lögð áhersla á umhverfismennt og atvinnulíf á Hornafirði.  Á miðviku- og fimmtudag fara 1.-4. bekkir í Geitafell í náttúruskoðun þar sem m.a. rannsakaðir eru steinar og jurtir.  En sömu daga kanna 5.-6. bekkur  atvinnulífið á Hornafirði og heimsækja fyrirtæki og vinna síðan plakat og frétt um einstök fyrirtæki sem birtast bæði á heimasíðu og í Eystrahorni.

Á föstudeginum  er hópavinna og verður skipað í hópa þvert á aldur þannig að saman  verða í hóp nemendur úr öllum aldurshópum.  Viðfangsefni hópanna er í anda umhverfismenntar en hóparnir verða þrír þ.e. hreyfihópur, listahópur og umhverfishópur. 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica