Opnir dagar í Hafnarskóla
Á opnum dögum á barnastigi er lögð áhersla á umhverfismennt og atvinnulíf á Hornafirði. Á miðviku- og fimmtudag fara 1.-4. bekkir í Geitafell í náttúruskoðun þar sem m.a. rannsakaðir eru steinar og jurtir. En sömu daga kanna 5.-6. bekkur atvinnulífið á Hornafirði og heimsækja fyrirtæki og vinna síðan plakat og frétt um einstök fyrirtæki sem birtast bæði á heimasíðu og í Eystrahorni.
Á föstudeginum er hópavinna og verður skipað í hópa þvert á aldur þannig að saman verða í hóp nemendur úr öllum aldurshópum. Viðfangsefni hópanna er í anda umhverfismenntar en hóparnir verða þrír þ.e. hreyfihópur, listahópur og umhverfishópur.



