Fréttir Grunnskóli
Nýsköpunar- og hönnunardagar í Grunnskóla Hornafjarðar 09
Nýsköpunar- og hönnunardagar í Grunnskóla Hornafjarðar 09
Mynd 4 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

Nýsköpunar- og hönnunardagar á unglingastigi

18.11.2009

Í morgun hófust nýsköpunar- og hönnunardagar í Heppuskóla.  Nemendur og starfsmenn voru búnir að sanka að sér allskonar dóti sem hægt er að nota til að örva hugmyndaflugið því það þarf aldeilis að nota þegar kemur að nýsköpun og hönnun.  Nemendur vinna á átta mismunandi stöðvum og viðfangsefnin eru t.d. að finna nýtt hlutverk fyrir gamla og ganglausa, velta fyrir sér hvernig hægt hefði verið að koma í veg fyrir ýmsa atburði með einhverjum uppfinningum og hverjar þær hefðu þá verið.  Af hverju ákveðin tæki voru búin til í upphafi og hvernig og margt fleira.  Einnnig er unnið að því að hanna umbúðir utan um veiðistangir, listaverk á eldspýtustokk og svo mætti lengi telja. 

Á föstudaginn kl. 12:30 verður sýning á þeim afurðum og hugmyndum sem litið hafa dagsins ljós og eru allir velkomnir á þá sýningu. 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica